Leiðsögn
Stórhöfða 29, 110 Reykjavík
Kt. 510772-0249
Opið /Open
13:00 -16:00, mán.- fim.
13:00 -16:00, Mon. - Thur.
Lokað á föstudögum / Friday closed
Sími / Tel
+354 588 8670
Leiðsögn - Félag leiðsögumanna • Stórhöfði 29 • Sími/Tel: (+354) 588 8670 • info@touristguide.is
Skrifstofan er opin frá kl. 13 - 16 mán.-fim. Lokað á föstudögum / Opening hours Mon-Thu: 1 pm-4 pm. Fri closed.
Í nýjasta fréttabréfi ASÍ er komið inn á óhefðbundið ráðningarsamband leiðsögumanna sem og annara einyrkja.
Leiðsögunám veturinn 2020-2021.
Inntökupróf í erlendu tungumáli verða 9. og 10. júní í Háskólanum á Akureyri eða í zoom.
Áhersla er á að mögulegt sé að stunda námið í heimabyggð. Fyrirlestrar teknir upp og tungumálaþjálfun í gegnum zoom hjá nemendum sem búa úti á landi.
Markmið leiðsögunáms er að búa nemendur undir það að fylgja ferðamönnum um landið. Námið er víðfeðmt og fjölbreytt. Fjallað um jarðfræði Íslands, sögu og menningu, gróður, dýralíf, atvinnuvegi og íslenskt samfélag, bókmenntir og listir. Nemendur fræddir um helstu ferðamannastaði á Íslandi, ferðamannaleiðir, náttúruvernd, umhverfismál og leiðsögutækni. Kennt verður tvö til þrjú kvöld í viku og farnar 5-7 vettvangs- og æfingaferðir á hvorri önn, oftast á laugardögum. Kennsla hefst um miðjan ágúst og námslok í maí 2021.
Námið er lánshæft til framfærslu- og skólagjalda hjá LÍN. Einnig veita fag- og stéttarfélög oft styrki til náms.
Frekari upplýsingar á simenntunha.is og í 460 8091.
Endurmenntun Háskóla Íslands auglýsir leiðsögunám á háskólastigi.
https://us3.campaign-archive.com/?e=&u=f4b194647590bbe9a96a9a81d&id=04204b3ec9
Sem lið í aðgerðum stjórnvalda til að styðja við stjórnendur, starfsfólk og verktaka í ferðaþjónustu býður Endurmenntun Háskóla Íslands upp á nokkur sumarnámskeið sem gætu nýst leiðsögumönnum. Um er að ræða tvö námskeið í ferðamálafræði sem einnig gætu einnig nýst þeim sem hyggja á nám í leiðsögun hjá EHÍ. Að auki eru nokkur námskeið sem hafa almenna skírskotun og gætu t.d. gagnast sjálfstætt starfandi leiðsögumönnum.
Hvert námskeið kostar kr. 3000.
https://www.endurmenntun.is/namskeid#/sumarurraedi/oll-namskeid/allsemesters
Sem lið í aðgerðum stjórnvalda til að styðja við stjórnendur, starfsfólk og verktaka í ferðaþjónustu býður Háskólinn á Hólum upp á ódýrt og aðgengilegt sumarfjarnám í ferðamálafræði og viðburðastjórnun. Um er að ræða hagkvæma sí/endurmenntun fyrir aðila í ferðaþjónustu en hvert námskeið kostar aðeins 3000,- og er jafnframt lánshæft hjá LÍN.
Umsóknarfrestur er 28. maí nk.
Námið verður kennt af Háskólanum á Hólum.
Lokað á föstudögum / Friday closed
Þessi vefsíða notar vafrakökur, með því að heimsækja vefsíðu okkar samþykkir þú notkun á vafrakökum. Sjá nánar.