Leiðsögn
Kringlan 7, 103 Reykjavík
Kt. 510772-0249
Opið /Open
08:30 -16:00, mán.- fim.
08:30 -16:00, Mon. - Thur.
08:30 -15:00, föstudögum
08:30 -15:00, friday
Sími / Tel
+354 588 8670
FRÆÐSLUNEFND LEIÐSAGNAR, MIÐVIKUDAGINN ÞANN 14. MAÍ 2025, KL.: 17:00 - 18:00; VIÐFANGSEFNIÐ: AFBROT, GLÆPIR, REFSIRAMMINN, HVAÐ HEFUR BREYST Í TÍMANNA RÁS. HVERT STEFNIR?
Fræðslunefnd Leiðsagnar verður með örfyrirlestur þann 14.05.25, kl. 17:00 - 18:00. Að þessu sinni er viðfangsefnið: Afbrot, glæpir, refsiramminn. Við spyrjum okkur spurningar eins og hvað hefur breyst í tímanna rás og hvert stefnir? Fyrirlesari: Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur og dósent í H.Í.. Hún hefur m.a. unnið margar rannsóknir í afbrotafræði. Nýjustu rannsóknir hennar eru á sviði ofbeldis og vopnaburðar ungmenna.
Fyrirlesturinn er fjarfundur,Fyrirlestrar Fræðslunefndar Leiðsagnar eru í samstarfi við Leiðsöguskóla Íslands. Kostnaður er: 2.000 ISK sem greiðist til Leiðsöguskóla Íslands.
Hér er slóð á skráningarformið https://forms.office.com/e/g8n6EHHpXH?origin=lprLink
Skráning er til kl. 13:00 þann 14. maí 2025 og fá þátttakendur sendar glærur og slóð á fyrirlesturinn þegar skáningu er lokið.
Upptaka af fyrirlestrinum verður send til félagsmanna, þeirra sem skrá sig á hann og er upptakan aðgengileg í viku, eftir að hún hefrur send til félagsmanna.
Vinsamlegast leggið 2.000 ISK inn á reikning Leiðsöguskóla Íslands til að staðfesta þátttöku. Kt.: 6808911419; bankaupplýsingar: 0537-26-012544.
Ef fyrirtæki greiðir fyrir þátttakanda, vinsamlega setjið nafn í skýringu á greiðslunni.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Kær kveðja,
Fræðslunefnd Leiðsagnar
Þessi vefsíða notar vafrakökur, með því að heimsækja vefsíðu okkar samþykkir þú notkun á vafrakökum. Sjá nánar.