Leiðsögn
Kringlan 7, 103 Reykjavík
Kt. 510772-0249
Opið /Open
08:30 -16:00, mán.- fim.
08:30 -16:00, Mon. - Thur.
08:30 -15:00, föstudögum
08:30 -15:00, friday
Sími / Tel
+354 588 8670
Tilkynning til launagreiðenda
English translation below
Þann 3. mars 2025 gerðu Leiðsögn – Félag leiðsögumanna og VR með sér samning um sameiningu frá og með 30. apríl 2025. Samningurinn var svo samþykktur í allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna Leiðsagnar sem lauk þann 24. mars 2025 og var staðfestur á aðalfundi VR þann 26. mars 2025.
Þetta þýðir að fyrrum félagar í Leiðsögn eru nú félagar í VR frá og með 30. apríl 2025.
Við þetta verður sú breyting að innheimta iðgjalda af launum frá og með maí 2025 færist til Lífeyrissjóðs verzlunarmanna kt. 430269-4459 f.h. VR, reikningsnúmer 515-26-1007, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Félagsnúmer VR er 511, gjalddagi er 10. dagur næsta mánaðar og eindagi síðasti virki dagur þess mánaðar.
Iðgjöld til VR eru eftirfarandi:
Félagsgjald 0,7%
Sjúkrasjóður 1%
Orlofsheimilasjóður 0,25%
Starfsmenntasjóður 0,3%
Félagsheimilasjóður 0,25% *
* Gjald í félagsheimilasjóð greiða launagreiðendur sem eru í einhverju eftirfarandi samtaka: Bílgreinasambandið, Kaupmannasamtök Íslands, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Félag atvinnurekenda, Samtök verslunar og þjónustu, Viðskiptaráð Íslands.
Til lífeyrissjóðs: Endurhæfingarsjóðsiðgjald 0,1%
Samkvæmt lögum ber launagreiðanda að standa skil á iðgjaldi í endurhæfingarsjóð til þess lífeyrissjóðs sem hann greiðir lífeyrisiðgjald til.
Mælt er með beinum skilum úr launakerfum eða netskilum.
Sjá nánar á vef Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hér:
https://www.live.is/launagreidendur/skil-idgjalda/
Með kveðju,
Leiðsögn / VR
English translation:
Notice to wage payers
On March 3, 2025, Leiðsögn – the Tourist Guide Union and VR entered into an agreement to merge as of April 30, 2025. The agreement was then approved in a general referendum among Leiðsögn members concluded on March 24, 2025 and was confirmed at the VR annual general meeting on March 26, 2025.
This means that former members of Leiðsögn are now members of VR as of April 30, 2025.
Consequently the collection of membership fees and contributions as of May 2025 transfers to the Pension Fund of Commerce (Lífeyrissjóður verzlunarmanna) ID 430269-4459 on behalf of VR, account number 515-26-1007, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. VR's union number is 511, the due date is the 10th day of the following month and the final date for payment is the last working day of that month.
Contributions to VR are as follows:
Membership fee 0,7%
Sickness fund 1%
Vacation cottages fund 0,25%
Vocational training fund 0,3%
Union meeting hall fund 0,25% *
* Members of the following associations shall contribute to the union meeting hall fund: Bílgreinasambandið, Kaupmannasamtök Íslands, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Félag atvinnurekanda, Samtök verslunar og þjónustu, Viðskiptaráð Íslands.
To the pension fund: Rehabilitation fund fee 0,1%
The rehabilitation fund fee is mandatory and shall be paid to the same pension fund as regular pension fund contributions.
Sending remittance forms directly from payroll systems or online is recommended.
See more on the website of the Pension Fund of Commerce here:
https://www.live.is/en/employers/remitting-contributions
Best regards,
Leiðsögn / VR
Þessi vefsíða notar vafrakökur, með því að heimsækja vefsíðu okkar samþykkir þú notkun á vafrakökum. Sjá nánar.