Leiðsögn - Félag leiðsögumanna   •   Stórhöfði 29  •   Sími/Tel:  (+354) 588 8670  •  info@touristguide.is
Skrifstofan er opin frá kl. 13 - 16 mán.-fim. Lokað á föstudögum / Opening hours Mon-Thu: 1 pm-4 pm. Fri closed.

×

Warning

JUser: :_load: Unable to load user with ID: 1411998
12
Nóv

Tillögur starfshóps til að styrkja og efla menntun og starfsþjálfun leiðsögumanna með áherslu á neytendavernd, náttúruvernd og öryggi.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra skipaði sl. haust starfshóp um menntun og starfsþjálfun leiðsögumanna. Starfshópnum var ætlað að skoða hvort og þá hvernig hægt væri að efla menntun og starfsþjálfun leiðsögumanna með áherslu á neytendavernd, náttúruvernd og öryggi. Hópnum var ætlað að líta til erlendra fyrirmynda, s.s. frá Nýja-Sjálandi, við mótun mögulegra tillagna um mismunandi kröfur til mismunandi gerðar leiðsagnar og leggja til grundvallar evrópska staðla um leiðsögunám og hæfi í tungumálum, sem og reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa. Í starfshópnum sátu fulltrúar Ferðamálastofu, sem jafnframt var formaður hópsins, Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Leiðsagnar – stéttarfélags leiðsögumanna, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Samtaka ferðaþjónustunnar og umhverfis- og auðlindaráðuneytis. Sjá nánar á þessari slóð: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2021/06/22/Starfshopur-um-leidsogumenn-skilar-skyrslu-til-radherra/

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image