15
Apríl

AÐALFUNDUR LEIÐSAGNAR – FÉLAGS LEIÐSÖGUMANNA 2025 Aðalfundur Leiðsagnar 2025 verður haldinn 15. maí nk. kl. 18:00 í sal VR á 9. hæð í Húsi verslunarinnar.

Fundurinn, sem er stað- og fjarfundur, fer fram á íslensku en er jafnframt túlkaður á ensku. Gengið er inn í húsið á jarðhæð norðan megin – um innganginn sem er á milli snyrtimiðstöðvarinnar og hárgreiðslustofunnar – og lyftan tekin upp á 9. hæð.Nánari upplýsingar sem snerta fjarfundinn verða sendar út síðar.

Leiðsögn General meeting will be held May 15th at 18:00 in Hús verslunarinnar, the venue of VR Union on the 9th floor. Entrance is on the ground floor on the north side of the house – the entrance between the beauty center and the hair saloon – then take the elevator to the 9th floor.

The General meeting will also be a zoom meeting. Further information on the zoom meeting will be sent out soon.

Dagskrá aðalfundar Leiðsagnar/ Program:

                  1•             Kosning fundarstjóra og annarra starfsmanna fundarins.

                  2•             Lýst yfir niðurstöðu í kjöri formanns og stjórnar.*(sjá hér að neðan)

                  3•             Skýrsla félagsstjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.

                  4•             Reikningar félagsins og sjóða þess lagðir fram til afgreiðslu.

                  5•             Tillögur um lagabreytingar, ef fyrir liggja.

                  6•             Fjárhagsáætlun lögð fram og tillaga gerð um fjárhæð aðildargjalds.

                  7•             Kosning til trúnaðarráðs.

                  8•             Kosning fulltrúa í fastanefndir og aðrar trúnaðarstöður.

                  9•             Kosning stjórnar Sjúkrasjóðs félagsins og eins fulltrúa í stjórn Endurmenntunarsjóðs.

                  10•          Kosning tveggja félagskjörinna skoðunarmanna reikninga til tveggja ára.

                  11•          Önnur mál.

Í ljósi þess að félagsfólk Leiðsagnar – félags leiðsögumanna samþykkti í allsherjaratkvæðagreiðslu að sameinast VR þá falla niður liðir 5–11 af dagskrá aðalfundar eins og þeir eru skráðir í listanum hér að ofan.

Þegar komið er að 5. dagskrárlið verður aðalfundi Leiðsagnar slitið. Boðað verður til aðalfundar nýrrar deildar Leiðsögufólks í VR í október næstkomandi, samkvæmt 6. gr. starfsreglna deildar Leiðsögufólks í VR.

Framboð til trúnaðarstarfa:

Rétt til framboðs til trúnaðarstarfa og til setu á aðalfundinum, með réttindi skv. 9. gr. laga, hafa þeir sem einum mánuði fyrir aðalfund höfðu greitt félagsgjald skv. 1. eða 3. málslið 6. gr. af launum sem svara til lægsta taxta félagsins fyrir tveggja mánaða dagvinnu á síðustu fjórum mánuðum, eða fjögurra mánaða dagvinnu á síðustu 12 mánuðum og/eða höfðu einum mánuði fyrir aðalfund greitt aðildargjald skv. 2. málslið 6. gr. fyrir yfirstandandi ár eða það næstliðna.

RAFRÆN KOSNING Í STJÓRN DEILDAR LEIÐSÖGUFÓLKS Í VR*

Í framhaldi af því að Leiðsögn samþykkti í allsherjaratkvæðagreiðslu að sameinast VR verður stofnuð deild Leiðsögufólks í VR. Samkvæmt starfsreglum deildarinnar verða stjórnarmenn hennar 7 að tölu. Fyrsta stjórndeildarinnar verður skipuð á eftirfarandi hátt: 

  • Þrír stjórnarmenn Leiðsagnar, sem kosnir voru til tveggja ára á aðalfundi félagsins 2024. 
  • Félag fjallaleiðsögumanna skipar einn stjórnarmann.
  • Félag ökuleiðsögumanna skipar einn stjórnarmann.
  • Tveir aðalmenn kosnir í stjórn deildar til tveggja ára.
  • Fjórir varamenn stjórnar kosnir til tveggja ára.

Í stjórn deildar þarf að kjósa tvo aðalmenn og fjóra varamenn til tveggja ára.
Fjöldi atkvæða ræður niðurröðun aðal- og varamanna í stjórn deildarinnar.
Skilafrestur á framboðum rennur út 25. apríl 2025.

Stjórnarkjör fer fram með rafrænum hætti og hefst kosning 5. maí 2025 og lýkur 12. maí 2025 á miðnætti.

Framkvæmd:
Rafræn kosning fer fram á vefsíðu Leiðsagnar – touristguide.is – þar sem félagsfólk skráir sig inn á Félagavefinn með rafrænum skilríkjum. Þar verður tengill í kosningarnar.

Kynning frambjóðenda:
Frambjóðendur geta kynnt sig á Félagavefnum (mínar síður) og vefsíðu Leiðsagnar. Eftir að öll framboð hafa borist verða þau kynnt í heild sinni á heimasíðu félagsins. Kynning þarf að berast skrifstofu leiðsagnar (This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.) áður en framboðsfresti lýkur; 25. apríl. Æskilegt er að í kynningu komi fram menntun frambjóðenda, reynsla af leiðsögn og helstu áherslur. Auk þess er mælt með að mynd fylgi framboðsupplýsingum.

Úr starfsreglum deildar Leiðsögufólks í VR:

6. gr. Aðalfundur og félagsfundir

Boðun aðalfundar:

Aðalfundur skal haldinn fyrir lok október ár hvert. Aðalfundur, ásamt dagskrá, skal boðaður með minnst 14 daga fyrirvara með auglýsingum í vefmiðlum VR og fréttamiðlum eða á annan sannanlegan hátt sem nær til félagsfólks. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað.

Á aðalfundi skulu eftirfarandi mál tekin fyrir:


  1. 1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
    2. Breytingar á starfsreglum, ef fyrir liggja
    3. Kjör stjórnar skv. 4. gr.
    4. Kjör í nefndir skv. 5. gr.
    5. Fjárhagsáætlun um félagslegt starf deildarinnar lögð fram
  2. 6. Önnur mál

 

Undirbúningsvinna vegna boðaðs aðalfundar Leiðsagnar, sem haldinn verður þann 15. maí 2025 kl. 18:00, hefur farið fram í samráði við lögfræðinga ASÍ.

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image