Kæru félagar í Leiðsögn!
Auka-aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 8. desember n.k. kl. 17:00 í fundarsal að Stórhöfða 29 (gengið inn Grafarvogsmegin).
Dagskrá:
- 1. Ákvörðun og atkvæðagreiðsla um upphæð aðildargjalds fyrir 2023.
- 2. Staða kjaraviðræðna.
- 3. Staða vinnu vð raunfærnimat.
- 4. Önnur mál.
Kosningar verða í rafrænar (svo að bæði þau sem eru á staðnum og þau sem eru á Zoom geti tekið þátt) og því er nauðsynlegt að taka með sér snjalltæki á fundinn (snjallsíma eða spjaldtölvu).
Ath! Fundinum verður streymt og verður hlekkur á streymið sendur sendur út fyrir fundinn.
Kær kveðja,
Friðrik Rafnsson
formaður Leiðsagnar – félags leiðsögumanna.
Stórhöfða 29,
110 Reykjavík
Heimasíða: https://www.touristguide.is/