Aukaaðalfundur Leiðsagnar – stéttarfélags leiðsögumanna var haldinn 8. júní. Á fundinum var Friðrik Rafnsson kosinn formaður félagsins, en aðrir í stjórn eru Jakob S. Jónsson Júlíus Freyr Theódórsson, Snorri S. Sigurðsson og Valva Árnadóttir. Auk þess var kosið í ýmis trúnaðarstörf á vegum Leiðsagnar og verður það birt á heimasíðu félagsins innan skamms.