Leiðsögn - Félag leiðsögumanna   •   Stórhöfði 29  •   Sími/Tel:  (+354) 588 8670  •  info@touristguide.is
Skrifstofan er opin frá kl. 13 - 16 mán.-fim. Lokað á föstudögum / Opening hours Mon-Thu: 1 pm-4 pm. Fri closed.

Lög Leiðsagnar

 

I. KAFLI

Nafn félagsins, hlutverk og félagsaðild

1. gr. Nafn

Félagið heitir Leiðsögn - Félag leiðsögumanna.

Félagssvæði þess er allt landið og heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. Félagið er aðili að Alþýðusambandi Íslands.

 

2. gr. Hlutverk

Félagið er samstarfsvettvangur og stéttarfélag leiðsögumanna í ferðaþjónustu á Íslandi og gætir hagsmuna þeirra og vinnur að því að efla menntun og menntunarmöguleika leiðsögumanna.

 

Tilgangur félagsins er:

  1. Að sameina innan sinna vébanda alla sem starfa við leiðsögn ferðamanna, hvers kyns leiðsögumenn, fararstjóra og hópstjóra hér á landi svo og þá sem sendir eru til slíkra starfa frá Íslandi á vegum fyrirtækja með staðfestu á Íslandi.

  2. Að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum félagsmanna, svo sem með því að semja um kaup og kjör þeirra, aðbúnað við vinnu og gæta þess að ekki sé gengið á lagalegan og samningsbundinn rétt þeirra.

  3. Auka gæði leiðsögustarfs með betri menntun og starfshæfni félagsmanna, og vinna að því að koma á menntunarkerfi fyrir leiðsögumenn með það fyrir augum að menntun þeirra verði í samræmi við evrópskar og alþjóðlegar viðmiðanir og að koma á raunfærnimati fyrir þá sem ekki uppfylla þær kröfur.

  4. Að auka þátt leiðsögumanna í góðri umgengni um landið, náttúruvernd og vinna að bættu öryggi ferðamanna og leiðsögumanna þeirra.

  5. Að kynna störf leiðsögumanna, efla samstarf þeirra innbyrðis og koma fram fyrir þeirra hönd á opinberum vettvangi hér á landi og erlendis.

  6. Að setja siðareglur og gæðastaðla fyrir þá sem starfa að leiðsögn í ferðaþjónustu á Íslandi.

 

 

3. gr. Félagsaðild

 

Rétt til aðildar að Leiðsögn eiga:

  1. allir sem starfa skv. kjarasamningum félagsins að leiðsögn, fararstjórn og hópstjórn í ferðaþjónustu skv. a.lið 2.mgr. 2.gr. enda greiði þeir gjöld til félagsins í samræmi við lög þess og standi ekki í óbættum sökum við félagið eða önnur stéttarfélög innan Alþýðusambands Íslands.

  2. þeir sem voru í Fagdeild félagsins fyrir almenna leiðsögn fyrir aðalfund þess á árinu 2022 og greiða gjöld til félagsins í samræmi við lög þess.

 

Félagsmenn, sem missa starf sitt á vinnumarkaði, halda félagsaðild gegn greiðslu félagsgjalds af greiðslum úr Atvinnuleysistryggingasjóði sem sjóðurinn hefur milligöngu um að skila til félagsins.

 

Þeir sem hafa verið félagsmenn í 3 ár áður en þeir láta af störfum við leiðsögn geta verið félagsmenn áfram gegn greiðslu aðildargjalds skv. 6. gr. og átt aðild að faghópum félagsins. Þeir eru án atkvæðisréttar um kjarasamninga og verkföll.

 

Réttindi félagsmanna samkvæmt 2. og 3. mgr. í sjóðum félagsins eru háð nánari reglum einstakra sjóða Leiðsagnar.

 

4. gr. Sjálfstætt starfandi

Sjálfstætt starfandi á vinnumarkaði geta orðið félagsmenn enda greiði þeir gjöld til félagsins sbr. 6. gr. Þeir geta átt takmörkuð réttindi skv. reglum einstakra sjóða. Sjálfstætt starfandi og/eða eigendur fyrirtækja í ferðaþjónustu eiga ekki rétt á að greiða atkvæði um kjarasamninga eða verkföll.

 

5. gr. Innganga í félagið

Umsækjendur um félagsaðild geta óskað eftir henni með inntökubeiðnum eða með skilum á gjöldum til félagsins.

Litið skal á skil atvinnurekanda á félagsgjaldi fyrir nýjan félaga sem ósk um inngöngu í félagið. Geri hann ekki athugasemdir um aðild sína innan 30 daga frá dagsetningu greiðslu telst hann orðinn félagsmaður.

Nýjum sjálfstætt starfandi félögum skv. 4. gr. sem óska aðildar að félaginu er skylt að veita upplýsingar um starfssvið, áætlaðar tekjur og gögn frá opinberum aðilum til staðfestingar á tekjum sé þess óskað.

 

6. gr. Félagsgjöld

Félagar í Leiðsögn skulu greiða félagsgjald sem er ákveðinn hundraðshluti af öllum launum sínum fyrir störf sem falla undir kjarasamning félagsins eins og ákveðið er á aðalfundi. Launagreiðendur draga þetta félagsgjald af launum leiðsögumanns í samræmi við ákvæði kjarasamninga og skila því til félagsins, en sjálfstætt starfandi standa skil á þeim gjöldum sjálfir. Skil til félagsins á félagsgjaldi og sjóðagjöldum skulu vera regluleg og í samræmi við greiðslur launa og verktakagreiðslna.

Sjálfstætt starfandi félagsmenn Leiðsagnar skulu greiða félagsgjald af launahluta þeirrar greiðslu sem þeir fá fyrir verktöku sína. Skal félagsgjaldið vera 0,5% af verktakagreiðslunni eins og hún er án kostnaðarliða annarra en launa og launatengdra gjalda (iðgjalda til sjóða Leiðsagnar og lífeyrissjóða og tryggingagjald).

Félagar í Leiðsögn skulu auk þess árlega greiða fast aðildargjald til félagsins. Fjárhæð aðildargjaldsins skal ákveðin á aðalfundi. Aðildargjald skal lækka um helming þegar félagsmaður nær 67 ára aldri. Nýir félagar í Leiðsögn eru undanþegnir greiðslu aðildargjalds fyrsta almanaksárið sem þeir greiða félagsgjöld sbr. 1. mgr.

 

7. gr. Faghópar

Innan Leiðsagnar starfa faghópar fyrir leiðsögumenn með nánar tiltekna menntun í leiðsögn, störf við tiltekna tegund leiðsagnar, sérstök starfsréttindi eða annað það sem nánar er tiltekið í reglum um faghópa. Aðild að félaginu getur falið í sér rétt til aðildar að einum eða fleiri faghópum og skal umsókn um aðild beint til viðkomandi faghóps. Hver faghópur setur sér reglur um aðild og starfshætti sem stjórn Leiðsagnar staðfestir.

Stjórn félagsins setur reglur um faghópa félagsins og skulu þeir njóta þjónustu félagsins vegna starfsemi sinnar eftir því sem nánar er ákveðið í reglum um þá. Faghóp skal stofna óski að lágmarki

10 félagsmenn þess. Að fengnu samþykki skal skrifstofa félagsins sjá um boðun stofnfundar þar sem leggja skal fram og samþykkja verksvið hópsins, markmið og áætlun.

Faghóparnir skulu vera samstarfsvettvangur fyrir þau sem í þeim eru og gæta sérhagsmuna þeirra. Þeir kjósa sér stjórn sem skipuleggur starfsemi þeirra og kemur fram fyrir þá gagnvart stjórn félagsins.

 

8. gr. Merki félagsins

Merki félagsins, í hvaða mynd sem er, er eign þess. Einungis félögum Leiðsagnar er heimilt
að bera það í samræmi við þær reglur sem um það gilda. Hvorki er leyfilegt að endurrita félagsmerkið til annarra nota, né sauma það í fatnað eða höfuðföt, án skriflegs leyfis félagsins. Fyrirtæki sem eingöngu eru með félaga í Leiðsögn í starfi við ferðaleiðsögn er heimilt að fengnu samþykki stjórnar félagsins að hafa félagsmerki þess í kynningu á leiðsögumönnum sínum enda sé það gert skv. reglum um notkun merkisins.

Stjórn félagsins setur reglur um notkun og gerð á merki félagsins.

 

 

II. KAFLI

Réttindi og skyldur félagsmanna

 

9. gr. Réttindi félagsmanna

Félagar í Leiðsögn hafa, nema önnur ákvæði laga þessara eða einstakra sjóða mæli fyrir um annað:

  1. málfrelsi, tillögu- og atkvæðisrétt á félagsfundum svo og kjörgengi til embætta og trúnaðarstarfa fyrir félagið. Enginn skal þó gegna því embætti eða þeim trúnaðarstörfum sem hann var kosinn til lengur en 6 ár samfellt. Atkvæðisrétt um kjarasamninga og verkfallsboðun skal miða við lokadag annars almanaksmánaðar á undan atkvæðagreiðslunni. Þeir einir hafa atkvæðisrétt sem þann dag höfðu að lágmarki greitt félagsgjald af launum sem svarar til lægsta taxta félagsins fyrir tveggja mánaða dagvinnu á síðustu fjórum mánuðum fyrir þann dag eða fjögurra mánaða dagvinnu á síðustu 12 mánuðum fyrir þann dag.

  2. rétt til að bera merki félagsins við vinnu sína í samræmi við lög félagsins og reglur sem stjórn þess setur.

  3. rétt til að skrá sig á lista yfir leiðsögumenn sem Leiðsögn útbýr og birtir.

  4. rétt á greiðslum úr sjóðum félagsins svo sem nánar er kveðið á um í reglugerðum sjóðanna.

 

Allir félagsmenn eiga rétt til aðstoðar félagsins vegna túlkunar á kjarasamningum og ágreinings um starfskjör.

 

10. gr. Skyldur

Skyldur félagsmanna eru:


a) að hlýða lögum félagsins, fundarsköpum, fundarsamþykktum og samningum þess.

b) að greiða tilskilin gjöld til félagsins.

 

11. gr. Brottvikning/áminning

Reynist félagsmaður sannur að broti gegn lögum félagsins eða siðareglum þess skal málið tekið fyrir í trúnaðarráði sem vísar því til stjórnar til ákvörðunar um hvort veita skuli honum áminningu eða hann sviptur réttindum fullgilds félagsmanns.

Vanræki sá sem situr í stjórn eða trúnaðarráði eða skipar aðrar trúnaðarstöður þær skyldur sínar skal stjórn félagsins skora á hann að bæta úr því. Gerist það ekki skal næsti varamaður taka við starfa hans, sé hann til staðar, en ella geri trúnaðarráð tillögu til stjórnar um hver taki við starfinu.

 

 

III. KAFLI.
Stjórn, trúnaðarráð og nefndir

 

12. gr. Stjórn

Stjórn félagsins skal skipuð fimm aðalmönnum, formanni og fjórum öðrum, auk fjögurra varamanna, kosnum á aðalfundi. Formaður skal kosinn sérstaklega til tveggja ára í senn, en aðrir stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára – tveir í senn. Varamenn eru kosnir til eins árs. Hverfi kjörinn stjórnarmaður úr stjórninni skal varamaður taka við stöðu hans og gilda þá um hann þeir tímafrestir sem um aðalmanninn höfðu gilt. Stjórnin skiptir með sér verkum og kýs varaformann, ritara og gjaldkera á fyrsta fundi eftir aðalfund.

 

Stjórnarfundi skal boða með a.m.k. 3ja daga fyrirvara með dagskrá og varamenn upplýstir um þá. Er þeim heimil fundarseta án atkvæðisréttar nema þeir séu boðaðir vegna fjarveru aðalmanns í stjórn.

 

Formaður og stjórnarmenn skulu kosin í almennri rafrænni atkvæðagreiðslu félagsmanna fyrir aðalfund ár hvert og fer um hana skv. reglugerð ASÍ um allsherjaratkvæðagreiðslur. Við kjör stjórnar skulu þeir sem flest atkvæði hljóta skipa sæti aðalmanna en þeir sem næstir koma vera varamenn. Skal kosningin standa yfir í eina viku og ljúka á miðnætti þremur dögum fyrir boðaðan aðalfund. Niðurstöður kosninga skulu kunngerðar í upphafi aðalfundar og tekur formaður og nýkjörin stjórn við stjórn félagsins að honum loknum.

 

Framboðsfresti vegna kosningar formanns og stjórnarmanna skal eigi ljúka fyrr en 10 sólarhringum fyrir upphaf rafrænnar kosningar. Skal tillögum um framboð skilað til skrifstofu Leiðsagnar fyrir þann tíma. Framboð verði birt á heimasíðu félagsins og með auglýsingu eigi síðar en einni viku fyrir upphaf rafrænnar kosningar.

 

Ákvæði til bráðabirgða.

Kosning til formanns og stjórnar með rafrænni atkvæðagreiðslu fari fyrst fram fyrir aðalfund Leiðsagnar á árinu 2023.

 

13. gr. Hlutverk stjórnar

Stjórnin hefur á hendi yfirstjórn allra félagsmála milli félagsfunda. Hún ræður starfsmenn félagsins, ákveður laun þeirra og vinnuskilyrði.

Stjórnin ber sameiginlega ábyrgð á eignum og sjóðum félagsins sem og rekstri skrifstofu þess. Hún annast kynningu á starfsemi félagsins fyrir félagsmenn og almenning.

Stjórnin annast samskipti og samstarf við samtök leiðsögumanna á Norðurlöndum og í Evrópu svo og félög leiðsögumanna í einstökum löndum eftir því sem tilefni er til.

Stjórnin boðar til félagsfunda og aðalfundar.

Stjórn félagsins er skylt að fara að lögum félagsins og ályktunum meirihluta félagsmanna á löglega boðuðum félagsfundum. Samþykki félagsfundur ályktun sem telst hafa víðtæk áhrif á starfsemi félagsins er stjórn heimilt að vísa henni til allsherjaratkvæðagreiðslu innan mánaðar frá samþykkt hennar. Við undirbúning allsherjaratkvæðagreiðslu skal þess gætt, að greinargerðir flytjenda samþykktra ályktunartillagna verði birtar með kjörgögnum.

Stjórn félagsins skal sjá til þess að allt er varðar sögu þess sé sem best varðveitt.


Láti félagsmaður af trúnaðarstörfum er hann gegnir fyrir félagið er honum skylt að skila af sér öllum gögnum er trúnaðarstörf hans varða.

 

14. gr. Formaður

Formaður er framkvæmdastjóri félagsins. Formaður kallar saman stjórn. Formanni er skylt að kalla saman stjórn óski a.m.k. tveir stjórnarmenn eftir því. Formaður undirritar gerðabækur félagsins og gætir þess að allir stjórnarmenn geri skyldu sína. Formaður hefur eftirlit með starfsemi félagsins og því að lögum þess og samþykktum sé fylgt í öllum greinum.

Varaformaður gegnir öllum störfum formanns í forföllum hans.

 

15. gr. Ritari og gjaldkeri

Ritari ber ábyrgð á að gerðabækur félagsins séu haldnar og færðar í þær allar fundagerðir og lagabreytingar. Hann undirritar gerðabækur ásamt formanni. Ritari ber ábyrgð á birtingu fundargerða félags- og stjórnarfunda á heimasíðu félagsins innan 10 daga eftir samþykkt þeirra.

Gjaldkeri er ábyrgur fyrir eftirliti með bókhaldi, fjárreiðum, og innheimtu félagsgjalda. Hann gerir á aðalfundi grein fyrir ársreikningum félagsins og fjárhagsáætlun næsta árs.

 

16. gr. Uppstillinganefnd

Trúnaðarráð kýs 3ja manna uppstillingarnefnd félagsmanna, sem ekki gegna öðrum trúnaðarstörfum fyrir félagið, með það verkefni að gera tillögur um frambjóðendur til trúnaðarstarfa innan félagsins. Skal fjöldi frambjóðenda minnst vera einn fyrir hvert trúnaðarstarf sem kosið skal í. Einstökum félagsmönnum er einnig heimilt að bjóða sig eða aðra fram til trúnaðarstarfa án atbeina uppstillinganefndar. Öllum frambjóðendum skal gefinn kostur á að kynna framboð sitt á heimasíðu félagsins eigi síðar en einni viku fyrir upphaf rafrænnar kosningar eða aðalfundar eftir því sem við á.

Tillögur uppstillinganefndar vegna kosningar formanns, stjórnar eða annarra trúnaðarstarfa í þágu félagsins, skulu liggja fyrir tveimur vikum fyrir upphaf rafrænnar kosningar eða aðalfundar.

 

17. gr. Trúnaðarráð

Í trúnaðarráði eiga sæti aðalmenn og varamenn í stjórn félagsins, sex félagsmenn og jafn margir varamenn kosnir á aðalfundi.

Trúnaðarráð er samninganefnd félagsins. Það kýs viðræðunefnd til að annast samningaviðræður og gerð kjarasamninga með fyrirvara um samþykki trúnaðarráðs.

Trúnaðarráð skal fylgjast náið með launaþróun og breytingum á vinnumarkaði og framkvæmd kjarasamninga félagsins og kýs eða tilnefnir kjaranefnd til að sinna þeim verkefnum og setur henni erindisbréf.

Trúnaðarráð skal jafnframt vera stjórn til ráðgjafar og aðstoðar í almennum málefnum félagsins og kýs í kjörstjórn til að sjá um allsherjaratkvæðagreiðslur skv. lögum þessum. Eftir því sem við á skipar miðstjórn ASÍ oddamann kjörstjórnar.

Formaður félagsins er formaður trúnaðarráðs og ritari félagsins ritari þess.

Formaður kveður trúnaðarráð til fundar með þeim hætti sem hann telur best henta og er hann lögmætur þegar meirihluti aðalmanna í stjórn og trúnaðarráði sækir fundinn.

Trúnaðarráð skal kalla til fundar að jafnaði eigi sjaldnar en ársfjórðungslega.

Formaður getur auk þess kallað saman trúnaðarráð stjórninni til aðstoðar þegar ýmis félagsleg vandamál ber að höndum og ekki eru tök á að ná saman félagsfundi og ræður einfaldur meirihluti úrslitum í slíkum málum.

 

18. gr. Fastanefndir

Innan félagsins starfa fastanefndir, Upplýsinganefnd, Fræðslunefnd og Fagráð skipaðar þremur félagsmönnum hver. Einn er tilnefndur af stjórn en tveir skulu kosnir til tveggja ára í senn á aðalfundi. Nefndirnar kjósa sér formann og skipta með sér verkum.

Upplýsinganefnd sér um öflun og gerð efnis sem varða starfsemi félagsins og störf leiðsögumanna til kynningar út á við og miðlunar milli félagsmanna. Hún sér um birtingu á hagnýtum upplýsingum fyrir leiðsögumenn og annast útgáfu á fréttabréfi og öðru kynningarefni sem félagið kann að ákveða.

Fræðslunefnd sér um fræðslu á vegum félagsins um efni sem tengist starfi og verkefnum leiðsögumanna við kynningu á landinu, þjóðinni og menningu hennar. Hún efnir til fræðslufunda um hagnýt og menningarleg efni, skipuleggur kynnisferðir fyrir leiðsögumenn, heimsóknir á áhugaverða staði, fræðslufundi og aðra viðburði.

Fagráð vinnur að stefnumótun í menntunar- og réttindamálum leiðsögumanna og kemur afstöðu félagsins í þeim á framfæri. Það annast samstarf við skóla sem kenna leiðsögn ferðamanna og annast skipulagningu námskeiða fyrir félagsmenn og fer með málefni sem varða starfsþjálfun og hefur umsjón með raunfærnimati.

Nefndir þessar starfa í nánu samráði við stjórn Leiðsagnar og skila henni yfirliti yfir störf sín svo oft sem þurfa þykir og greinargerð til aðalfundar félagsins.

 

IV. KAFLI.
Fundir og kjör í trúnaðarstöður

 

19. gr. Félagsfundir

Félagsfundir skulu haldnir þegar félagsstjórn telur þess þörf eða minnst 20 félagsmenn óska þess skriflega við stjórn félagsins og tilgreina fundarefni. Boða skal til fundarins innan tveggja vikna frá því að slík beiðni berst. Fundir skulu boðaðir með auglýsingu á heimasíðu félagsins með minnst þriggja daga fyrirvara og með tölvupósti til þeirra sem hafa gefið upp netfang. Fundi í sambandi við vinnudeilur má boða með skemmri fyrirvara.

Fundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað. Verði ágreiningur um fundarsköp úrskurðar fundarstjóri hverju sinni með rökstuddum úrskurði í samræmi við almenn fundarsköp. Óski félagsmaður eftir skriflegri atkvæðagreiðslu á félagsfundi er fundarstjóra skylt að verða við
þeirri ósk styðji a.m.k. 2 aðrir fundarmenn þá tillögu. Í atkvæðagreiðslum á fundum félagsins ræður einfaldur meirihluti atkvæða nema lög kveði á um annað.

Trúnaðarráð efnir til almenns félagsfundar vegna undirbúnings kjarasamninga sem og til kynningar á samningum þegar þeir hafa verið gerðir.


20. gr.
Allsherjaratkvæðisgreiðsla

Allsherjaratkvæðagreiðsla skal fara fram;

  1. þegar stjórn og trúnaðarráð telja mál svo mikilvæg að rétt sé að hafa slíka afgreiðslu.

  2. þegar greiða þarf atkvæði um verkfallsboðun nema verkfalli sé einungis ætlað að taka til ákveðins hóps félagsmanna eða starfsmanna á tilgreindum vinnustað og er þá heimilt að taka ákvörðun um vinnustöðvun með atkvæðum þeirra sem henni er ætlað að taka til.

  3. þegar greidd eru atkvæði um aðalkjarasamning félagsins og

  4. þegar mælt er fyrir um allsherjaratkvæðagreiðslu skv. lögum ASÍ.

    Framkvæmd allsherjaratkvæðagreiðslu fer þá samkvæmt lögum og reglugerð ASÍ.

 

21. gr. Aðalfundur

Aðalfundur félagsins skal haldinn á tímabilinu 1. apríl til 31. maí ár hvert. Aðalfund skal boða með dagskrá á heimasíðu félagsins og með auglýsingum í fjölmiðlum með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara og er hann lögmætur ef þannig er til hans boðað. Fundarboð skal einnig senda í tölvupósti til félaga með skráð netföng hjá félaginu.

 

Á aðalfundi skal liggja frammi skrá yfir félaga og kjörskrá. Rétt til setu á aðalfundi með réttindi skv. 9. gr. hafa þeir sem einum mánuði fyrir aðalfund höfðu greitt félagsgjald skv. 1. eða 3. málslið 6. gr. af launum sem svara til lægsta taxta félagsins fyrir tveggja mánaða dagvinnu á síðustu fjórum mánuðum eða fjögurra mánaða dagvinnu á síðustu 12 mánuðum og/eða höfðu einum mánuði fyrir aðalfund greitt aðildargjald skv. 2. málslið 6. gr. fyrir yfirstandandi ár eða það næstliðna.

 

Auglýsa skal frest til framboðs í trúnaðarstöður og frest fyrir tillögur til lagabreytinga einum mánuði fyrir aðalfund.

 

Kjósa skal í trúnaðarráð og nefndir félagsins á aðalfundi. Framboð til þeirra starfa eftir að framboðsfresti lýkur eru því aðeins heimil að ekki hafi innan frestsins borist framboð til þeirra. Slíkum framboðum skal fylgja skrifleg heimild frá þeim sem stungið er upp á.

 

Framboðsfresti vegna kosningar til trúnaðarstarfa sem kosið er í á aðalfundi skal eigi ljúka fyrr en 10 sólarhringum fyrir aðalfund. Skal tillögum um framboð skilað til skrifstofu Leiðsagnar fyrir þann tíma. Framboð skal birta á heimasíðu félagsins með boðun aðalfundar.

 

22. gr. Dagskrá aðalfundar

Dagskrá aðalfundar skal vera:

  1. Kosning fundarstjóra og annarra starfsmanna fundarins.
  2. Lýst yfir niðurstöðu í kjöri formanns og stjórnar.
  3. Skýrsla fráfarandi félagsstjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
  4. Reikningar félagsins og sjóða þess lagðir fram til afgreiðslu.
  5. Tillögur um lagabreytingar ef fyrir liggja.
  6. Fjárhagsáætlun lögð fram og tillaga gerð um fjárhæð aðildargjalds.
  7. Kosning til trúnaðarráðs.
  8. Kosning fulltrúa í fastanefndir og aðrar trúnaðarstöður.
  9. Kosning stjórnar Sjúkrasjóðs félagsins og eins fulltrúa í stjórn Endurmenntunarsjóðs.
  10. Kosning tveggja félagskjörinna skoðunarmanna reikninga til tveggja ára.
  11. Önnur mál.

 

 

V. KAFLI
Sjóðir og fjármál

 

23. gr.
Sjóðir

Sjóðir félagsins skulu vera:

1. Félagssjóður.

2. Sjúkrasjóður.

3. Endurmenntunarsjóður.

 

Sjóðir félagsins aðrir en félagssjóður skulu hafa sérstaka reglugerð samþykkta á aðalfundi. Reglugerðum sjóða má aðeins breyta á aðalfundi. Reglugerð hvers sjóðs skal tilgreina hlutverk sjóðsins, hverjar tekjur hans skulu vera, hvernig verja skuli fé hans og hvernig honum skuli stjórnað.

 

Stjórn Sjúkrasjóðs hefur eftirlit með rekstri hans og ákveður greiðslur úr honum í samræmi við reglugerð um hann. Aðalfundur kýs þrjá menn og tvo til vara, sem ekki sitja í stjórn félagsins, í stjórn sjóðsins til tveggja ára í senn. Ákvörðunum stjórnar Sjúkrasjóðs má áfrýja til stjórnar félagsins.

Stjórn Endurmenntunarsjóðs er skipuð fulltrúum aðila að kjarasamningu félagsins í samræmi við ákvæði hans. Einn af fulltrúum Leiðsagnar í stjórn sjóðsins skal kosinn á aðalfundi.

Ofantaldir sjóðir greiða allan kostnað af starfsemi félagsins samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð.

Sjóðir félagsins skulu ávaxtaðir á tryggan hátt í ríkisskuldabréfum eða í ríkistryggðum skuldabréfum, í bönkum, í sparisjóðum og skuldabréfum tryggðum með veði í fasteign. Við meiriháttar ráðstafanir á eignum félagsins þarf samþykki félagsfundar.

 

24. gr. Reikningsár

Reikningsár félagsins skal vera almanaksárið.

 

25. gr. Endurskoðun

Tveir félagskjörnir skoðunarmenn reikninga, sem kosnir eru á aðalfundi skulu yfirfara reikninga félagsins fyrir liðið reikningsár og gera athugasemdir við þá. Auk athugunar hinna félagskjörnu skoðunarmanna er stjórn skylt að láta löggiltan endurskoðanda endurskoða reikninga og fjárreiður félagsins í lok hvers reikningsárs. Endurskoðaðir reikningar félagsins og sjóða þess skulu liggja frammi á skrifstofu félagsins og vera á innri vef félagsins í a.m.k. í sjö daga fyrir aðalfund.

 

 

VI. KAFLI Ýmis ákvæði

26. gr. Heiðursfélagar

Heiðursfélagar geta þeir félagsmenn orðið sem hafa unnið mikið og óeigingjarnt starf fyrir félagið eða ferðaþjónustu í landinu. Trúnaðarráð útnefnir heiðursfélaga, enda sé það gert með samhljóða atkvæðum. Einnig geta 15 félagsmenn gert tillögu um heiðursfélaga og skal hún lögð fyrir trúnaðarráð til afgreiðslu. Heiðursfélagar skulu vera undanþegnir gjaldskyldu til félagssjóðs og gegna ekki trúnaðarstörfum fyrir félagið en eru háðir ákvæðum laga þess að öðru leyti.

 

27. gr. Jafnrétti og lýðræði

Stjórn félagsins og stofnanir þess skulu ástunda lýðræðisleg vinnubrögð í hvívetna, gæta jafnræðis meðal félagsmanna og stuðla að jafnri stöðu kynjanna sbr. lög. nr. 15/2020.

 

28. gr. Félagsslit

Félaginu verður ekki slitið nema félagsfundur samþykki tillögu þar um og a.m.k. 3⁄4 félagsmanna samþykki það að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu og skal henni hagað skv. reglugerð ASÍ um allsherjaratkvæðagreiðslur.

Allsherjaratkvæðagreiðsla skal fara fram innan þriggja mánaða frá því að félagsfundur samþykkir tillögu um félagsslit en þó aldrei fyrr en nefnd skv. 3. mgr. hefur lokið störfum.

Komi fram tillaga um slit félagsins skal trúnaðarráð þegar í stað skipa nefnd þriggja félagsmanna auk lögfræðings og löggilts endurskoðanda er komi fram með tillögu um ráðstöfun eigna félagsins við félagsslitin. Nefndin skal ljúka störfum innan tveggja mánaða frá skipun.

Eignum félagsins má ekki ráðstafa til félagsmanna.

Greiða skal atkvæði um tillögu nefndarinnar jafnhliða tillögu um félagsslit.

 

29. gr. Úrsögn

Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg. Hún skal afhent formanni félagsins eða skrifstofu ásamt félagsskírteini og merki félagsmanna.

Enginn getur sagt sig úr félaginu eftir að ákvörðun hefur verið tekin um að efna til atkvæðagreiðsla um vinnustöðvun og hafi hún verið samþykkt þar til vinnustöðvuninni hefur verið formlega aflýst.

 

30. gr. Lagabreytingar

Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi enda hafi breytinganna verið getið í fundarboði.

Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist til skrifstofu félagsins 15 dögum fyrir aðalfund og skulu þær sérstaklega kynntar á heimasíðu félagsins og fylgja aðalfundarboði.

Til þess að lagabreytingar nái fram að ganga skulu þær hljóta samþykki 2/3 hluta atkvæða.

Lagabreytingar taka gildi um leið og þær hafa verið samþykktar. Lagabreytingar skal leggja fyrir miðstjórn ASÍ til staðfestingar.

 

31. gr. Úrsögn úr ASÍ

Um úrsögn úr ASÍ fer skv. lögum ASÍ.

 

 

Þannig samþykkt á aðalfundi félagsins, 26. apríl 2022. Samhliða falla úr gildi í heild sinni eldri lög félagsins.

Image

Merki Leiðsagnar

Merki Leiðsagnar - Félags leiðsögumanna, er eign félagsins. Hvorki er leyfilegt að endurrita félagsmerkið til annarra nota, né sauma það í fatnað eða höfuðföt, án skriflegs leyfis stjórnar. Leiðsögumenn með staðfesta félagsaðild í Leiðsögn, geta sótt um leyfi stjórnar til að hafa félagsmerki Leiðsagnar í kynningargögnum sínum svo sem prentgripum (prentgögnum) og vefsíðum í kynningu á viðkomandi nafngreindum leiðsögumanni enda sé það gert skv. reglum um notkun merkisins.

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image