Forsíða arrow Vinstri hlið arrow Leiðsögunám
Valmöguleikar
Um félagið
Lög Félags leiðsögumanna
Stéttarfélagið
Fagfélagið
Stjórn og nefndir
Leiðsögunám
Fréttabréf leiðsögumanna
Gagnlegt efni
Á döfinni

Innskráning Fagfélagsaðila.
notandanafn

Lykilorð

Muna eftir mér

RSS
Hvernig verður maður leiðsögumaður?   Prenta  Senda 

Nám fyrir verðandi fagmenntaða leiðsögumenn er í boði í þremur skólum á Íslandi;

  1. Leiðsöguskóla Íslands
  2. Endurmenntun Háskóla Íslands
  3. Ferðamálaskóla Íslands

Starf leiðsögumanna er hvorki löggilt né er starfsheiti leiðsögumanna lögverndað. Löggildingarnefnd Félags leiðsögumanna vinnur að því hörðum höndum að fá starfsheitið löggilt, en lögverndun starfsheitis til vara.

Félag leiðsögumanna viðurkennir nám sem fylgir námskrá leiðsögunáms útgefinni af menntamálaráðuneytinu árið 2004, eða strangari kröfum.

Árið 2008 tók gildi evrópskur staðall (CEN 15565) um lágmarksmenntun leiðsögumanna í Evrópu. Ísland er aðili að þessum staðli í gegnum EES-samninginn en til að hann fái gildi hér á landi þarf fyrst að lögfesta hann á Alþingi eða að minnsta kosti í reglugerð.

Lágmarksmenntun leiðsögumanna í Evrópu skal samkvæmt staðlinum vera 600 klukkustundir hið minnsta en einstök lönd gera meiri kröfur. Óljóst er hvort nokkur skóli á Íslandi uppfylli lágmarkskröfurnar samkvæmt staðlinum. Það er verkefni skólanefndar Félags leiðsögumanna að sannreyna það í samvinnu við skólana, og leggja fram tillögur í samræmi við niðurstöðuna. Evrópskur staðall CEN EN 15565 2008.

 

Leiðsöguskóli Íslands

við Menntaskólann í Kópavogi

Leiðsöguskóli Íslands hefur útskrifað yfir 1000 leiðsögumenn frá stofnun hans árið 1976. Skólinn er í húsnæði Menntaskólans í Kópavogi.

Inntökuskilyrði:

Inntökuskilyrði í skólann sem hefst í byrjun september ár hvert eru þau að sá sem sækir um þarf að vera orðin/n 21 árs þegar námið hefst og hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu námi sem fagstjóri metur í hvert sinn.

Nemendur þurfa einnig að standast inntökupróf í að minnsta kosti einu erlendu tungumáli auk íslensku. Reiknað er með að nemendur hafi mjög gott vald á því erlenda tungumáli sem þeir hyggjast útskrifast.

Kennslutímar og lengd námsins:

Kennsla fer fram á kvöldin frá byrjun september til maí loka frá klukkan 17:30-22:00 þrjú kvöld í viku. Auk þess fara nemendur nokkrar vettvangsferðir sem oftast eru á laugardögum.

Námið telst fullt nám í eitt ár og er samtals 480, 40 mínútna kennslustundir. Á vormisseri 2009 er stefnt að því að bjóða uppá sérhæft nám í almennri leiðsögn, afþreyingarleiðsögn og gönguleiðsögn.

Fjórir sérhæfingarmöguleikar, fjögur kjörsvið:

  • Almennri leiðsögn lýkur með 6 daga hringferð um landið.
  • Gönguleiðsögn lýkur með nokkurra daga gönguferð með allt á bakinu.
  • Afþreyingarleiðsögn lýkur með nokkrum spennandi vettvangsferðum.

Hverjir stunda nám við skólann?

Rúmlega 50 nemendur stunda nám við skólann skólaárið 2008-2009. Nemendur eru frá 21 árs til sjötugs og hafa mjög fjölbreytta menntun og reynslu að baki. Meðalaldur nemenda er um 40 ár.

Nánari upplýsingar:

Nánari upplýsingar er að fá á eftirfarandi vefslóðum:

Námskrá leiðsögunáms útgefin af menntamálaráðuneyti 2004.

 

Endurmenntun Háskóla Íslands

við Dunhaga

Endurmenntun Háskóla Íslands býður í fyrsta sinn haustið 2008 uppá leiðsögunám á háskólastigi. Náminu er ætlað að styrkja enn frekar fagmennsku og fjölbreytileika í faginu. Nemendur geta stundað staðnám eða fjarnám.

Námið er 404, 60 mínútna kennslustundir og reiknað er með sjálfstæðu vinnuframlagi nemenda sem nemur 796 klukkustundum.

Endurmenntun býður uppá þriggja missera Leiðsögunám á háskólastigi sem nemendur geta sinnt samhliða starfi. Námið er sérstaklega sniðið fyrir þá sem vilja búa sig undir starf leiðsögumanns á Íslandi.

Megináhersla námsins er lögð á hagnýta þekkingu á sviði leiðsagnar með erlenda ferðamenn. Miðað er að því að nemendur geri sér grein fyrir eðli og starfsemi ferðaþjónustu á Íslandi og kunni skil á hlutverki og ábyrgð leiðsögumanns.

Þjálfun í hópstjórn og samskiptum við ferðamenn með ólíkar væntingar er hluti af náminu. Farið verður yfir ímynd lands og þjóðar ásamt þýðingu atvinnugreinarinnar fyrir þjóðarbúið. Eftir námið eiga nemendur m.a. að hafa haldgóða þekkingu á helstu þáttum náttúrufars, sögu og menningu Íslands ásamt þróun íslensks samfélags og geta miðlað þessari þekkingu til ferðamanna.

Mikilvægt er fyrir leiðsögumenn að vera vel að sér í erlendu tungumáli og því er lögð áhersla á aukinn sérhæfðan orðaforða sem tengist sögu, menningu og náttúru Íslands á völdu tungumáli.

Viðurkennt nám sem aukagrein Leiðsögunámið telst fullt nám í eitt ár en er dreift yfir þrjú misseri. Námið er 60 ektur (ECTS-European Credit Transfer System) á grunnstigi háskóla (BA).

Námsgreinar eru kenndar í lotum sem lýkur með prófi og/eða verkefni áður en sú næsta hefst. Hægt er að fá námið viðurkennt sem aukagrein með ferðamálafræði og jafnframt í hugvísindadeild Háskóla Íslands.

Inntökuskilyrði í námið er stúdentspróf eða sambærilegt menntun. Gott vald á íslenskri tungu sem og fullt vald á því tungumáli sem umsækjandi hyggst nota í leiðsögn. Standast þarf inntökupróf í tungumálinu.

Fagráð leiðsögunámsins

Sérstakt fagráð starfar með Endurmenntun eins og jafnan þegar um lengra nám er að ræða. Fagráðið er ráðgefandi um faglegt innihald og þróun námsins. Eftirtaldir aðilar skipa ráðið.
  • Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent í ferðamálafræði við HÍ
  • Oddný G. Sverrisdóttir, dósent við hugvísindadeild HÍ
  • Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri
  • Marion Lerner, varaformaður Félags leiðsögumanna
  • Ásgeir Eiríksson, fulltrúi frá Samtökum ferðaþjónustunnar
  • Erna Guðrún Agnarsdóttir, námsstjóri hjá Endurmenntun HÍ
  • Sara Þórunn Óladóttir Houe, verkefnastjóri námsins hjá EHÍ

    Námið hófst í september 2008.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Endurmenntunar eða hjá verkefnastjóra námsins Steinunni Þórhallsdóttur í síma 525-5293.

Námslýsing í PDF skjali.

Ljósmynd af fyrsta árgangi nemenda leiðsögumanna í Endurmenntun HÍ

 

Stefán Helgi Valsson

Ýmsar myndir af leiðsögumönnum við leik og störf á myndavefsíðunni Flickr, smellið hér.

Ferðamálaskóli Íslands á Bíldshöfða

Ferðamálaskólinn Íslands er einkaskóli og er staðsettur á Bíldshöfða í Reykjavík. Þar var boðið upp á sérhæft leiðsögunám í fyrsta sinn árið 2002 og sérhæft fararstjóranám fyrir íslenska fararstjóra á erlendri grundu 2007. Nokkrir tugir nemenda hafa útskrifast þaðan. Námið er 420, 45 mínútna kennslustundir. Um 20 nemendur hafa útskrifast frá skólanum á hverju ári.

Heimasíða Ferðamálaskóla Íslands.


Skoða allar fréttir...


Annað
Skrifstofa
Pistlar
Listi yfir fagmenntaða leiðsögumenn
List of professional tourist guides in Iceland
Auglýsa eftir leiðsögumanni
ATHUGIÐ! Öryggisatriði vegna eldgoss og ösku

Störf í boði fyrir leiðsögumenn
Life of Whales (Hvalalíf)

Félag leiðsögumanna | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | Sími +354 588 8670 | info@touristguide.is