|
566 þúsund erlendir ferðamenn 2011
|
|
|
|
|
|
|
|
Þá liggur fyrir hve margir erlendir ferðamenn komu til landsins á nýliðnu ári . Reyndust þeir vera 566 þúsund og er um að ræða 15,8% aukningu frá 2010 en þá voru erlendir ferðamenn tæplega 489 þúsund talsins. Hafa ferðamenn aldrei verið fleiri á einu ári.
Langflestir erlendra ferðamanna eða 95,6% fóru um Keflavíkurflugvöll, 2,2% með Norrænu um Seyðisfjörð og 2,2% um Reykjavíkur-, Akureyrar- eða Egilsstaðaflugvöll. Vert er að taka fram að tölur fyrir aðra staði en Keflavíkurflugvöll byggja ekki á eiginlegri talningu heldur mati út frá sölu- og farþegatölum.
Þar fyrir utan eru farþegar með skemmtiferðaskipum en tæplega 63 þúsund farþegar komu til Reykjavíkur með 67 skipum árið 2011, 10,6% færri en á árinu 2010 þegar þeir voru um 70 þúsund talsins. Um 95% skemmtiferðaskipa til landsins hafa viðkomu í Reykjavík.
Samantekt og nánari upplýsingar Á vef Ferðamálastofu er nú aðgengileg samantekt á fjölda ferðamanna sem fóru um Leifsstöð í fyrra, skipt niður eftir tímabilum, þ.e. vetur, vor, sumar og haust, með samanburði við árið á undan. Talningar Ferðamálastofu í Leifsstöð hafa staðið yfir í 10 ár og eru aðgengilegar mánuð fyrir mánuð, skipt eftir þjóðernum, frá febrúar 2002.(Frá Ferðamálastofu) ritnefnd/KJ |