|
Skúli Möller var í samninganfend FL Reykjavík, 06.07.11 Útreikningar á kostnaðarliðum. Í samningum Fl frá 1997 var samið um sérstaka kostnaðarliði, þ.e. bóka-, fata- og undirbúning. Þessi liður var ákveðinn 1 klst. í dagvinnu í launaflokki viðkomandi leiðsögumanns. Til viðbótar kemur svo orlofs- og desemberuppbót sem er miðuð við upphæð á ári. Desember- og orlofsuppbót þarf að breyta í upphæð pr. klukkustund. Það þarf því fyrst að deila með 12 og fæst þá upphæð pr. mánuð. Í þá upphæð er svo deilt með 173,33 og fæst þá uppbótin pr. klst. Þetta lítur þannig út: Desemberuppbót fyrir 2011 er kr. 55,000 deilt með 12 = 4.583,33 pr. mánuð 4.583,33 deilt með 173,33 = 26,44kr. pr. klst. Orlofsuppbót fyrir 2011 er kr. 20,300 deilt með 12 = 1,691,67 pr. mánuð 1,691,67 deilt með 173,33 = 9,76 kr. pr. klst. Ekki er greitt orlof á þessar uppbætur. Tímakaup fyrir dagvinnu í 4. launaflokk er kr. 1373,33. við deilum í þessa tölu með 8 og fáum þá út kostnaðarliði pr. klst. Þannig verður það 1373,33 deilt með 8 = 171,67 Á þessa krónutölu reiknast orlof 171,67 x 12,07% = 20,72 kr. Sem gerir þá 171,67 + 20,72 = 192,39 pr. klst. Kostnaðarliðir verða því: 192,39 + 26,44 + 9,76 = 228,59 Hér munar aðeins á mínum útreikningi og upphæðarinnar sem skráð er í launatöflu og munar rúmum 8 krónum og er þessi munur vegna mismunandi reikningsaðferðar. Það breytir ekki því að svona er upphæð kostnaðarliða fundar út |