Forsíða arrow Minjasafn Austurlands á Egilsstöðum
Valmöguleikar
Um félagið
Lög Félags leiðsögumanna
Stéttarfélagið
Fagfélagið
Stjórn og nefndir
Leiðsögunám
Fréttabréf leiðsögumanna
Gagnlegt efni
Á döfinni

Innskráning Fagfélagsaðila.
notandanafn

Lykilorð

Muna eftir mér

RSS

Fréttir frá stjórn | Sjá allar

3.9.2010. Félagsmálaskóli býður upp á námskeið

Spennandi námskeið eru í boði sem Félagsmálaskólinn greiðir niður um 50% og ASÍ um 25%. Félagsmönnum með stéttarfélagsaðild er boðið til að skrá sig. ...
Nánar...

12.8.2010. Endurgreiðsla vegna séreignarsparnaðar sem skerti atvinnuleysisbætur

Þeir sem eru 60 ára eða eldri og telja að greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði til þeirra hafi verið skertar vegna greiðslna úr séreignarlífeyriss...
Nánar...

12.8.2010. Námskeið Endurmenntunar ætluð félagsmönnum Fl

Á haustmisseri 2010 verða haldin tvö námskeið aðeins ætluð félagsmönnum í Félagi leiðsögumanna.Námskeiðsefni er valið í samvinnu Endurmenntunar og Fél...
Nánar...


Aðrar fréttir

Minjasafn Austurlands á Egilsstöðum   Prenta  Senda 
Kynning á Minjasafni Austurlands á Egilsstöðum. Bréf til leiðsögumanna frá safnstjóra:Kæri leiðsögumaður

Mig langar til að kynna fyrir þér Minjasafn Austurlands á Egilsstöðum. Það er hefðbundið safn með nýstárlega og líflega nálgun til að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi. Grunnsýningin „Sveitin og þorpið“ fjallar um hefðbundna, íslenska sveitasamfélagið og innreið nútímans hins vegar með tilliti til sérkenna svæðisins. Í sumar standa jafnframt yfir sýningarnar „Dauðir rísa ... úr gröfum Skriðuklausturs“ og ljósmyndasýning Þjóðminjasafnsins „Þroski, þrælkun, þrá?“. Gestir okkar af hinum ýmsu þjóðernum eru almennt ánægðir með heimsóknina til okkar og til gamans koma hér nokkrar setningar sem skrifaðar hafa verið í gestabók okkar nú í sumar:

Í sumar (14. júní – 15. ágúst) verður opnunartími verulega lengdur á safninu. Mánudaga til fimmtudaga verður opið til 21 á kvöldin og er það gert til að koma til móts við þann fjölda ferðamanna sem koma í Egilsstaði síðla dags til næturdvalar, borða hér kvöldverð og vantar síðan oft einhverja afþreyingu að honum loknum.  Aðra daga er opið 11-17. Aðgangseyrir er 500 kr fyrir fullorðna, frítt fyrir börn og ellilífeyrisþega. Hópar fá 20% afslátt og frítt er inn fyrir alla á miðvikudögum.

SUMARBLÓT

Á þriðjudagskvöldum á tímabilinu 29. júní til 10. ágúst verður boðið upp á dagskrá fyrir gesti sem við kjósum að kalla Sumarblót. Gestir eru fræddir um líf og hefðir Íslendinga áður fyrr á þorranum, fá innsýn í heimkynni fólks, hvernig tekið var á móti þorra og hvaða merkingu sá árstími hafði fyrir marga. Einnig fylgir fróðleikur um þorrablót og gestir læra einfaldan vikivaka. Í lokin er svo boðið upp á hákarl og harðfisk og að því loknu skoða gestir safnið.

Dagskráin hefst kl. 19.30, verð er 1.000 kr. fyrir fullorðna og 600 kr. fyrir börn yngri en 16 ára og ellilífeyrisþega.

SNERTISAFN

Í kjallara Safnahússins hefur verið sett upp snertisafn sem er fyrir alla, unga sem aldna, sem vilja snerta hluti og prófa safngripina. Þar má finna t.d. víkingaklæðnað, ýmis spil, leynikassa, sauðskinnsskó og völur og leggi svo eitthvað sé til talið.

Með kærri kveðju

Elfa Hlín Pétursdóttir, safnstjóri

Minjasafn Austurlands, Laufskógar 1, 700 Egilsstaðir, s. 471-1412, www.minjasafn.is

(ml/stjórn)


Skoða allar fréttir...


Annað
Skrifstofa
Pistlar
Listi yfir fagmenntaða leiðsögumenn
List of professional tourist guides in Iceland
Auglýsa eftir leiðsögumanni
ATHUGIÐ! Öryggisatriði vegna eldgoss og ösku

Störf í boði fyrir leiðsögumenn
Life of Whales (Hvalalíf)

Félag leiðsögumanna | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | Sími +354 588 8670 | info@touristguide.is