| Innskráning Fagfélagsaðila. |
|
|
|
Fréttir frá stjórn | Sjá allar3.9.2010. Félagsmálaskóli býður upp á námskeiðSpennandi námskeið eru í boði sem Félagsmálaskólinn greiðir niður um 50% og ASÍ um 25%. Félagsmönnum með stéttarfélagsaðild er boðið til að skrá sig. ... Nánar...12.8.2010. Endurgreiðsla vegna séreignarsparnaðar sem skerti atvinnuleysisbæturÞeir sem eru 60 ára eða eldri og telja að greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði til þeirra hafi verið skertar vegna greiðslna úr séreignarlífeyriss... Nánar...12.8.2010. Námskeið Endurmenntunar ætluð félagsmönnum FlÁ haustmisseri 2010 verða haldin tvö námskeið aðeins ætluð félagsmönnum í Félagi leiðsögumanna.Námskeiðsefni er valið í samvinnu Endurmenntunar og Fél... Nánar... |
Aðrar fréttir
|
Skoðunarferðir Landverndar: Trölladyngja - Kerlingarfjöll - Torfajökulssvæðið
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Undanfarin sumur hefur Landvernd skipulagt skoðunarferðir um náttúrusvæði sem rætt er um að nýta til orkuöflunar. Í sumar mun Landvernd halda uppteknum hætti og bjóða upp á jarðfræðiferðir um jarðhitasvæði í samstarfi við Ferðafélag Íslands og Hálendisferðir.
Í maí og júní var farið á Reykjanes og á Ölkelduháls og þaðan í baðferð í Reykjadal fyrir ofan Hveragerði. 4. júlí nk. verður gengið um Trölladyngjusvæðið; 24.-25. júlí haldið í Kerlingarfjöll og 7.-9. ágúst á Torfajökulssvæðið. Jarðfræðingarnir Sigmundur Einarsson og Kristján Jónasson leiðsegja hópunum. Áfangastaðir Landverndar eiga það sammerkt að búa yfir einstakri náttúrufegurð, auk þess að vera álitnir gjöful orkuvinnslusvæði. Tilgangur ferðanna er að fræðast um jarðfræði þessara svæða, hugleiða möguleg áhrif orkuvinnslu og njóta um leið útivistar í einkar sérstæðri náttúru. Bókanir fyrir dagsferð í Trölladyngju 4. júlí eru hjá Ferðafélagi Íslands í síma 568 2533 eða sendast til fi@fi.is Sjá ferðaáætlun hér: www.fi.is Bókanir í ferðirnar í Kerlingarfjöll og á Torfajökulssvæðið eru hjá Hálendisferðum í síma 864 0412 (9-17) og 561 4012 (kl. 9-14) eða sendast með tölvupósti til info@halendisferdir.is Nánari upplýsingar sjá: www.halendisferdir.is (ml/stjórn) |
Skoða allar fréttir...
|
| Störf í boði fyrir leiðsögumenn |
|
|
|
| Félag leiðsögumanna |
Mörkinni 6 |
108 Reykjavík |
Sími +354 588 8670 |
info@touristguide.is |
|