|
ATHUGIÐ! Öryggisatriði vegna eldgoss og ösku
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Erindi frá stjórn Félags leiðsögumanna hefur verið lagt fram við Almannavarnir, Iðnaðarráðuneyti, SAF og Ferðamálastofu. Almannavarnir benda leiðsögumönnum á eftirfarandi: - stöðuskýrslur um gosið eru gerðar daglega frá upphafi goss þar sem farið er yfir þróun gossins og þar koma nýjar upplýsingar fram um málefni á áhrifasvæði gossins - framvegis munu þær verða aðgengilegar á heimasíðunni Almannavarna bæði á íslensku http://www.almannavarnir.is/displayer.asp?cat_id=427 og ensku http://www.almannavarnir.is/displayer.asp?cat_id=428 - fréttasíður um gosið bæði á íslensku og ensku http://www.almannavarnir.is/displayer.asp?cat_id=418 http://www.almannavarnir.is/displayer.asp?cat_id=418 Þegar leiðsögumenn fara um öskufallssvæðið verður upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn í Hvoli á Hvolsvelli þar sem hægt verður að fá upplýsingar um áhrifasvæði eldgossins og upplagt að stoppa þar. Einnig er fyrirhugað að hafa upplýsingamiðstöðvar á fleiri stöðum. Ekki hafa komið fram rannsóknir sem sýna hver eru áhrif ösku á menn til langstíma litið, en ef þið lendið í miklu öskufalli með ferðamenn þá er gott að hafa til taks í bílunum grímur og gleraugu og vara fólk við, enda eru óþægindi sem geta fylgja þessu, sértstaklega fyrir viðkvæma. Hægt er að fá grímur á heilsugæslustöðvum á öskufallssvæðinu. Á heimasíðunni Almannavarna eru ýmsar upplýsingar sem hægt er að nýta sér við leiðsögn og leiðsögumenn geta gert útdrátt sem þeim finnst henta fyrir sig og sína ferðamenn. Svo er bæklingur áhrif ösku á heilsu á íslensku http://www.almannavarnir.is/upload/files/Heilsutjon_Oskufall_20100420%20linkar.pdf og ensku http://www.almannavarnir.is/upload/files/Health_Guidelines_English_WEB%281%29.pdf og um öskufall á íslensku http://www.almannavarnir.is/upload/files/Oskufall_20100419%20tenglar1.pdf og ensku http://www.almannavarnir.is/upload/files/Preparedness_Guidelines_English_WEB%281%29.pdf (ml/stjórn) |