|
 23.2.2010. Skúli Möller er nýr formađur Félags leiđsögumanna kosinn á ađalfundi Félags leiđsögumanna 22. febrúar 2010. Ragnheiđur Björnsdóttir, fráfarandi formađur, gegndi embćttinu frá 2006.Lögmćti fundarins Friđrik Haraldsson, einn ţriggja í laganefnd sem var kosin á ađalfundi 2009, bar upp tillögu ţess efnis ađ fundinum yrđi slitiđ, annar fundur haldinn seinna og til hans bođađ á löglegan hátt enda hafđi láđst ađ geta lagabreytinga frá laganefnd í fundarbođi. Skúli Möller varđi lögmćti fundarins fyrir hönd stjórnar og sagđi skilyrđi í lögum félagsins samkvćmt 24.gr. laga félagsins, ţ.e. ađ lagabreytingar berist stjórn fyrir 20. desember ár hvert fyrir ađalfund sem fram fer í febrúar. Ţađ hafi ekki veriđ gert og ţess vegna hafi lagabreytinganna ekki veriđ getiđ í fundarbođi. Friđrik Haraldsson vísađi til 13.gr. laga félagsins sem segir „Stjórnin hefur á hendi yfirstjórn allra félagsmála milli félagsfunda,“ sem ţýđir ađ stjórnin bar ábyrđ ţví ađ geta lagabreytinganna í fundarboođi. Ţar ađ auki skilađi nefndin tillögununum til stjórnarinnar fyrir 20. desember 2009. Halldór Magnússon fundarstjóri lét kjósa um tillögu um fundarslit og tillagan var felld. Ađ svo búnu gekk Friđrik af „ólöglegum“ fundi. Bryndís Kristjánsdóttir tók til máls úr sćti sínu undir liđnum önnur mál. Hún benti á ađ e.t.v. hefđi mátt hlusta betur á málflutning Friđriks ţví greinilegt sé ađ stjórnsýsla félagsins hefđi brugđist fyrst vinna laganefndarinnar sem kosin var á ađalfundinum 2009 var ekki tekin til greina. Nýr einkennisbúningur fyrir leiđsögumenn Ţórhildur Sigurđardóttir kynnti sérstakan fatnađ framleiddan hjá Hexa í Kópavogi fyrir fagdeildarfélaga. Um er ađ rćđa tvćr útgáfur af rauđum léttum sumarjakka í karla og kvensniđi. Ađ sögn Ţórhildar kostar jakki um 10.000 krónur og viđ ţađ bćtist kostnađur viđ ađ sauma einkennismerki félagsins um 2.500 krónur.
Tap félagsins Skúli Möller kynnti ársreikninga félagsins ţar sem fram kemur ađ tap ársins 2009 nemur nćr 800.000 krónum. Ţađ sem helst hćkkađi á árinu var félagsgjald í FEG, húsaleiga, bifreiđastyrkur og reikningsleg ađstođ. Stađa fjármagnsliđa var neikvćđ um 80.000 krónur. Húsaleiga hćkkađ um 314.000 krónur úr 405.000 í 718.000. Ađalfundur félagsins 2009 ákvađ ađ hćkka félagsgjöld fagdeildarfélaga úr 5.000 krónum í 6.000 krónur sem kemur til innheimtu í vor. Skúli lagđi til ađ félagsgjald fagdeildar yrđi ekki hćkkađ á nćsta ári og var ţađ samţykkt. Ađ lokum gaf Skúli fyrirheit um ađ hann mundi gera ţađ sem í hans valdi stćđi til ađ koma í veg fyrir viđlíkt tap starfsáriđ 2010.
Kjör í stjórn og nefndir Skúli Möller var kosinn einróma án mótframbođs formađur til tveggja ára. Úr stjórn félagsins ganga Guđrún Frederiksen og Pétur Gauti Valgeirsson. Ţar sem Skúl Möller var í stjórn ţurfti ađ kjósa ţrjá nýja stjórnarmenn, tvo til tveggja ára og einn til eins árs. Hjalti Ţór Björnsson og Ţórhildur Sigurđardóttir voru kosin til tveggja ára og Ţorsteinn Svavar MaKinstry til eins árs. Í varastjórn voru kosin Bryndís Kristjánsdóttir og Kári Jónasson til tveggja ára og Guđrún Frederiksen til eins árs. Í frćđslunefnd voru kosnar Ţórhildur Sigurđardóttir, Martina Pötzsch og Ţórunn Ţórarinsdóttir. Til vara eru Niels Rask Vendelbjerg og Sólveig Nikulásdóttir. Í ritnefnd voru kosnir Helgi H. Jónsson, Kári Jónasson og Stefán Helgi Valsson Í kjaranefnd voru kosnir Magnús Oddsson, Skúli Möller og Pétur Jónsson. Til vara eru Hjalti Ţór Björnsson og Ragnheiđur Björnsdóttir. Skođunarmenn reikninga voru kjörnir Gylfi Guđmundsson og Valur Pálsson. Ragnheiđur Björnsdóttir var kosin til vara. Í trúnađarráđ voru kjörnir sem ađalmenn: Berglind Steinsdóttir - Börkur Hrólfsson
- Halldór Snćţórsson
Pétur Gauti Valgeirsson - Ragnheiđur Björnsdóttir
- Stefán Helgi Valsson
Í trúnađarráđ voru kjörnir sem varamenn: Elín Agnarsdóttir Elísabet Brand Hólmfríđur Sigvaldadóttir
Önnur mál Alţjóđlegur dagur leiđsögumanna Stefán Helgi Valsson framkvćmdastjóri Alţjóđlegs dags leiđsögumanna sagđi frá Alţjóđlegum degi leiđsögumanna 2009 og 2010 sem láđist ađ geta í skýrslu stjórnar fyrir starfsáriđ 2009-2010. Stefán benti á mikilvćgi dagsins fyrir leisögumenn og ţakkađi ţeim sem tóku ţátt 2009 og ţeim John Spencer, Skúla Möller og Emil Kristjánssyni sem leiđsöguđu 21. febrúar 2010.
Innganga í Alţjóđafélag leiđsögumanna fyrir ţingiđ í Tallin 2011 Stefán Helgi Valsson skorađi á stjórn félagsins ađ taka til gaumgćfilegrar athugunar ađ ganga aftur í Alţjóđafélag leiđsögumanna (WFTGA) en FL sagđi sig úr ţví félagi á sínum tíma vegna fjárskorts. Einkum á ţetta viđ núna ţar sem Evrópusamtök leiđsögufélaga hafa hćkkađ ađildargjaldiđ fyrir verulega og er ţađ nú 1.400 evrur. Ađild ađ Alţjóđafélaginu er 350 evrur. Stefán sagđi lag ađ ganga í Alţjóđafélag leiđsögumanna núna ţar sem ađalfundur félagsins verđur í nćsta nágrenni viđ okkur í byrjun nćsta árs í Tallin en síđasta ţing var haldiđ á Balí. Sagđist Stefán stefna ađ ţví ađ fara á ţingiđ og hvatti félagsmenn til ađ gera hiđ sama.
Vefsíđa Félags leiđsögumanna Stefán Helgi Valsson, ritstjóri vefsíđu og Fréttabréfs Félags leiđsögumanna, gagnrýndi ađ stjórn félagsins hefđi skömmu fyrir ađalfund breytt útliti og virkni heimasíđu félagsins án samráđs viđ ritnefnd. Umsjón síđunnar hefur frá byrjun árs 2006 veriđ í höndum ritnefndar ţótt vefsíđu sé hvergi getiđ í lögum félagsins. Stefán greindi frá ţví ađ stjórn félagsins hefđi örfáum dögum fyrir ađalfund lagt undir sig ž af ađalsvćđi síđunnar međ ársgömlum fréttum m.a. um afsláttarkjör til félagsmanna. Ennfremur ađ tengill sem vísađi á fréttabréf ritnefndar og annar sem vísađi á ţátttöku FL í Alţjóđlegum degi leiđsögufélaga hefđu veriđ fjarlćgđir. Stefán lagđi áherslu á mikilvćgi vefsíđunnar fyrir félagiđ og ađ hún vćri andlit ţess og ţví gengi ekki ađ vera međ ársgamlar fréttir frá stjórn nema ţá ef tilgangur stjórnarinnar sé ađ fćla lesendur frá síđunni. Stefán greindi frá 300 prósenta fjölgun einstakra notenda og nćr 800 prósenta fjölgun heimsókna frá ţví ađ ritnefnd hóf afskipti af síđunni ţannig ađ um umtalsverđan árangur er ađ rćđa. Stefán lagđi til ađ kosin yrđi laganefnd á fundinum í ţví skyni ađ semja lagagrein sem sker úr um hver ber ábyrgđ á vefsíđu félagsins. Fundarstjóri benti á ađ nú ţegar vćri laganefnd ađ störfum í félaginu. Ennfremur bendi fundarstjóri Stefáni á ađ vinna međ stjórn ađ úrlausn málsins og / eđa semja lagabreytingartillögu sjálfur og senda til stjórnar fyrir 20. desember 2010. Sú lagabreytingartillaga yrđi ţá tekin til umrćđu og kosningar á ađalfundi 2011. Áherslur stjórnar Kári Jónasson beindi tilmćlum til stjórnar ađ sćkjast eftir ađkomu ađ skipulagsmálum í ferđaţjónustu, t.d. Ferđamálaráđi. Kári benti réttilega á ađ ţeir sem koma ađ ţví verki eru embćttismenn sem ekki hafa sömu nálćgđ viđ hlutina eins og leiđsögumenn á vettvangi. Hann tók sem dćmi ađ nú á ađ úthluta 7-900 milljónum króna í úrbćtur á ferđamannastöđum og sagđi sjónarmiđ leiđsögumanna eiga heima í ţeirri vinnu.
Evrópustađall um lágmarksmenntun leiđsögumanna Börkur Hrólfsson sagđi evrópustađal um lágmarksmenntun leiđsögumanna hafa fariđ hljótt og félagiđ hefđi ekkert gert til ađ fá ţennan stađal stađfestan međ lögum eđa reglugerđ. Stefán Helgi Valsson upplýsti fundinn um ađ enginn skóli sem kennir leiđsögunám um ţessar mundir hafi sýnt stađlinum áhuga enda er hann ekki bundinn í lög eđa reglugerđir. Hinsvegar hefur Hólaskóli, Háskólinn á Hólum, sýnt stađlinum áhuga sem hluta af BA-námi í ferđamálafrćđi. Ţađ verđur spennandi ađ sjá hvađ verđur úr ţví. Megininntak stađalsins er ađ lágmarksmenntun leiđsögumanna sé 600 klukkustundir og ađ um 40% námsins sé verklegt. Stefán greindi frá ţví ađ í lokaniđurstöđu stađalsins hefđi láđst ađ leggja áherslu á ađ tímalengdin sé 600 klukkustundir međ kennara (ekki kennslustundir sem eru mismunandi ađ lengd eftir skólum og fyrir utan heimavinnu). Mikilvćgt er ađ allir geri sér grein fyrir ţví ađ stađallinn er lágmarksviđmiđ um menntun leiđsögumanna í 27 evrópulöndum ađ Íslandi međtöldu. Ţau lönd sem gera meiri kröfur gera ţađ áfram.
Barátta leiđsögumanna gegn launagreiđendum Börkur Hrólfsson lagđi til viđ stjórn ađ sinna betur ţví hlutverki ađ ađstođa einstaka leiđsögumann í ađ ná fram lögbundnum réttindum sínum samkvćmt kjarasamningi. Einstaklingar sem setja sig á háan hest og vilja fá laun og fríđindi samkvćmt kjarasamningum eru ekki ráđnir aftur. Í stađ ţess ađ leiđsögumenn rembist einir gegn launagreiđendum og fái bágt fyrir, jafnvel missi vinnuna eins og dćmin sanna, er ćskilegt ađ Félag leiđsögumanna beiti sér í meira mćli en áđur. Fundarslit Ragnheiđur Björnsdóttir afhenti Skúla Möller lykilinn ađ skrifstofu félagsins međ formlegum hćtti og óskađi honum velfarnađar. Skúli ţakkađi félagsmönnum traustiđ og kallađi á stuđning félagsmanna til góđra verka. -shv/ritnefnd |