|
Alþjóðlegur dagur leiðsögumanna 21. febrúar 2010
|
|
|
|
|
|
|
|
|
21.2.2010. Emil Örn Kristjánsson, John Spencer og Skúli Möller leiðsögðu um 30 ferðamönnum ókeypis um miðborgina í dag í tilefni af Alþjóðlegum degi leiðsögumanna.  Emil leiðsagði Íslendingunum um Kvosina. Hann sagði frá bátalægi landnámsmanna í tjörninni á landnámsöld, læknum undir Lækjargötu, tilurð nafnsins á Vonarstræti, Austurvöll, Stjórnarráðið, Thomsensund, Hafnarstræti, Aðalstræti og Fógetagarðinn. 
John og Skúli leiðsögðu enskumælandi gestum m.a. frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Ítalíu og Perú. Góður rómur var gerður að leiðsögninni. 
Leiðsögumenn héldu fyrst uppá Alþjóðlegan dag leiðsögumanna (e. International Tourist Guide Day) árið 1990 að frumkvæði Alþjóðasambands leiðsögufélaga (WFTGA). Stefán Helgi Valsson er framkvæmdastjóri Alþjóðlegs dags leiðsögumanna. -shv/ritnefnd Sjá einnig á Pressan.is, smellið hér. Þetta gerðu Ungverjar 2010, smellið hér. Næsta þing Alþjóðafélags leiðsögumanna er í Tallin í janúar 2011, smellið hér. |