|
Tilboð í vænar úlpur Fyrirtækið HEXA, Smiðjuvegi 10 í Kópavogi hefur gert Félagi leiðsögumanna tilboð í úlpur handa félagsmönnum. Úlpurnar eru rauðar með ísaumuðu merki félagsins. Verð er eftirfarandi: Úlpan er á 10.800 kr + vsk. = 13.554 kr Merking 968kr + vsk. = 1215 kr. með vsk. Alls = 14.769 kr. úlpa + merking. Vindjakki 12960 kr. = 16265 kr með vsk. Merking kr. 968 + vsk. = 1215 kr. með vsk. Alls = 17.480 kr. vindjakki + merking. Tilboðið er að vísu bundið því að ákveðinn fjöld verði keyptur. Leiðsögumenn er hvattir til að nota sér þetta tilboð og mæta í verslun fyrirtækisins og máta stærðir og panta úlpu. Afgreiðslufrestur er 4-6 vikur. Vísa þarf fram félagsskírteini (fagfélagsaðild). Verið er að skoða að bjóða út annan fatnað, sem hentar velfyrir leiðsögumenn, en það verður nánar tilkynnt síðar. (þs/ml/stjórn) Trölladyngja - Kerlingarfjöll - Torfajökulssvæðið Undanfarin sumur hefur Landvernd skipulagt skoðunarferðir um náttúrusvæði sem rætt er um að nýta til orkuöflunar. Í sumar mun Landvernd halda uppteknum hætti og bjóða upp á jarðfræðiferðir um jarðhitasvæði í samstarfi við Ferðafélag Íslands og Hálendisferðir. Í maí og júní var farið á Reykjanes og á Ölkelduháls og þaðan í baðferð í Reykjadal fyrir ofan Hveragerði. 4. júlí nk. verður gengið um Trölladyngjusvæðið; 24.-25. júlí haldið í Kerlingarfjöll og 7.-9. ágúst á Torfajökulssvæðið. Jarðfræðingarnir Sigmundur Einarsson og Kristján Jónasson leiðsegja hópunum. Áfangastaðir Landverndar eiga það sammerkt að búa yfir einstakri náttúrufegurð, auk þess að vera álitnir gjöful orkuvinnslusvæði. Tilgangur ferðanna er að fræðast um jarðfræði þessara svæða, hugleiða möguleg áhrif orkuvinnslu og njóta um leið útivistar í einkar sérstæðri náttúru. Bókanir fyrir dagsferð í Trölladyngju 4. júlí eru hjá Ferðafélagi Íslands í síma 568 2533 eða sendast til fi@fi.is Sjá ferðaáætlun hér: www.fi.is Bókanir í ferðirnar í Kerlingarfjöll og á Torfajökulssvæðið eru hjá Hálendisferðum í síma 864 0412 (9-17) og 561 4012 (kl. 9-14) eða sendast með tölvupósti til info@halendisferdir.is Nánari upplýsingar sjá: www.halendisferdir.is hj/skrifstofa Boð til leiðsögumanna.
Ágætu leiðsögumenn. Ég vil vekja athygli á dagskrá þjóðgarðsins sem getur nýst leiðsögumönnum vel til gagns og gamans. Sjá hér: http://www.thingvellir.is/dagskra/ Fimmtudagskvöldgönguferðirnar hefjast næsta fimmtudag 10 júní en þá mun Bjarki Sveinbjörnsson fjalla um Alþingishátíðina 1930 og tónlistina og annað kvöld hefjast nýjar gönguferðir þar sem athygli verður beint að náttúru Þingvallavatns og mun Skúli Skúlason fjalla um Bleikjuna í Þingvallavatni. Með góðri kveðju Einar Á. E. Sæmundsson, fræðslufulltrúi hj/skrifstofa Sveitamarkaðurinn á Hvolsvelli Þann 12. júní hóf starfsemi sveitamarkaður í gömlu Húsasmiðju bröggunum á Hvolsvelli. Markaðurinn var stofnaður af fjölbreyttum hópi framleiðanda og annara hagsmunaaðila í sveitafélaginu. Sunnlenski Sveitamarkaðurinn á Hvolsvelli er nýr en gamaldags sveitamarkaður þar sem áhersla er lögð á framleiðslu sunnlenskra sveitaframleiðenda. Boðið er upp á kjöt, grænmeti, ávexti, handverk og listmunir af ýmsu tagi og góða stemningu! Okkur langaði að gera eitthvað uppbyggilegt og skemmtilegt á svæði sem hefur átt undir högg að sækja og þótti tilvalið að kynna afurðir svæðisins fyrir landsmönnum Markaðurinn opið er alla daga vikunnar á milli 11-5 í sumar og allir félagar úr félagi leiðsögumanna sem koma með hópa í heimsókn á markaðinn fá 1500 kr gjafabréf sem hægt er að nýta í allt sem er á boðstólum á markaðnum. M.b.Kv, Árni Jensen Sveitamarkaðurinn Hvolsvelli S. 867-0930 hj/skrifstofa |