|
Sjóðir FL hugsanlega glataðir - Félagsfundur í kvöld (FL)
|
|
|
|
|
|
|
|
|
15.10.2008. Lífeyrissjóður Félags leiðsögumanna ásamt endurmenntunar-sjóði og sjúkrasjóði eru í hættu vegna falls Glitnis. Hugsanlegt er að sjóðir félagsins séu glataðir en þeirri spurningu svarar fulltrúi bankans á haustfundinum.
Upphaflega átti að verja tíma í það á þessum haustfundi að fjalla um afstöðu félagsins til rammaáætlunar um auðlindir landsins. Frá því var horfið á síðustu stundu enda framsögumenn uppteknir við aðra hluti vegna þróunar á fjármálamörkuðunum undanfarna daga.
Dagskrá:
- Gunnar Baldvinsson, framkvæmdarstjóri Almenna lífeyrissjóðsins, fjallar um stöðu einstaklingsins á fjáramálamarkaði almennt og stöðu sjóða félagsins, s.s. sjúkrasjóðs hjá Glitni.
- Þórhildur Stefánsdóttir, starfsmaður sjóðsins, fjallar um stöðu lífeyrissjóðs félagsmanna.
- Önnur mál.
-shv/ritnefnd
Aðgerðarstjórn ASÍ vegna efnahagsástandsins |