| Innskráning Fagfélagsaðila. |
|
|
| Teljari |
|
1366606 Heimsóknir |
|

|
Ökuleiðsögumenn ósáttir við óbreytt ákvæði í kjarasamningi
|
|
|
|
|
|
|
|
29.4.2008. „Ég reikna ekki með að okkar félagsmenn komi til með að greiða atkvæði með kjarasamningi Félags leiðsögumanna við Samtök atvinnurekenda í ferðaþjónustu að óbreyttu,“ segir Árni Magnússon, formaður Félags ökuleiðsögumanna.
Á fundi stjórnar, kjaranefndar og trúnaðarráðs FL kom fram að viðsemjendur neita að endurskoða ákvæði 2.5.2 í kjarasamningi milli FL og SAF eins og ökuleiðsögumenn krefjast en þar segir: „Sé leiðsögumaður ráðinn til ökuleiðsagnar þá skal greiða 50% álag á tímakaup fyrir ökuleiðsögn í langferðarbifreiðum sem taka fleiri en 9 farþega.
Löng hefð var fyrir því að greiða ökuleiðsögumönnum 50% álag ofan á leiðsögulaunin, óháð stærð langferðabifreiðarinnar, áður en ákvæði 2.5.2 kom til í síðasta kjarasamningi.
Ökuleiðsögumenn vilja fella út ákvæðið um stærð langferðabifreiðarinnar.
Í Félagi ökuleiðsögumanna eru um 70 aðilar sem jafnframt eru fagmenntaðir leiðsögumenn og langflestir eru félagar í Félagi leiðsögumanna. Þegar kemur til atkvæðagreiðslu um samninginn munu atkvæði þeirra vega þungt.
Stefán Helgi Valsson
Skyldar fréttir:
Félag ökuleiðsögumanna fundaði með kjarasamninganefnd FL
Óforsvaranlegt ákvæði kjarasamnings um ökuleiðsögn stendur
|
Skoða allar fréttir...
|
|
| Félag leiðsögumanna | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | Sími +354 588 8670 | info@touristguide.is |
|