|
|
|
|
|
|
Félag leiðsögumanna var stofnað árið 1972. Stofnfélagar, sem voru 27 talsins, höfðu flestir starfað um árabil við leiðsögu erlendra og íslenskra ferðamanna. Nú eru rúmlega 600 leiðsögumenn skráðir í félagið. Aðeins hluti félagsmanna hefur leiðsögu að aðalstarfi en þeim fer þó stöðugt fjölgandi, enda lengist ferðamannatíminn á Íslandi ár frá ári.
Fag- og stéttarfélag
Félag leiðsögumanna er í senn fag- og stéttarfélag. Félagið á aðild að ASÍ sem sjálfstætt félag. Samstarf
Félag leiðsögumanna er meðlimur í tvennum alþjóðlegum samtökum leiðsögumanna. Þau eru Samtök leiðsögumanna á Norðurlöndum (IGC) og Samtök evrópskra leiðsögumanna (FEG). Á Íslandi er félagið aðili að Landvernd. Einkunnarorð Félags leiðsögumanna eru: Landinu virðing - lífinu hlýja. |