Forsíða
Valmöguleikar
Um félagið
Lög Félags leiðsögumanna
Stéttarfélagið
Fagfélagið
Stjórn og nefndir
Leiðsögunám
Fréttabréf leiðsögumanna
Gagnlegt efni
Á döfinni

Innskráning Fagfélagsaðila.
notandanafn

Lykilorð

Muna eftir mér

RSS
Námskeið fyrir félagsmenn hjá Leiðsöguskólanum.   Prenta  Senda 

Leiðsöguskólinn

Á vorönn 2010 býður Leiðsöguskólinn upp á spennandi námskeið fyrir félagsmenn í  Félagi leiðsögumanna.  Kennt er á þriðjudagskvöldum frá kl. 19:15 – 22:00 í húsnæði Menntaskólans í Kópavogi í stofu N20.

Félagsmönnum í FL er bent á að sækja um endurgreiðslu hluta námsskeiðsgjalds í Endurmenntunarsjóð Félags Leiðsögumanna.


Reykjanes 

Áhugaverður og skemmtilegur fróðleikur um allt mögulegt sem tengist Reykjanesinu s.s. spennandi gönguleiðum, þjóðsögum, tónlist og hellum.  Einnig verður fjallað um veru hersins á Reykjanesi og hvernig það svæði er nýtt í dag.
Fyrirlesarar: Hildur Harðardóttir, Rannveig Garðarsdóttir, Jónatan Garðarsson, Björn Hróarsson, Óli Örn Eiríksson og Friðþór Eydal.
Dags: 9.mars, 16. mars og 23. mars
Verð 9.000 kr

Fuglar og fuglaskoðun

Fróðlegir og fjölbreyttir fyrirlestrar um fugla á Íslandi.  Hvar halda þeir sig helst, hvað ber að varast við fuglaskoðun ofl.  Einnig verða „hjálpartæki“ til fuglaskoðunar kynnt svo sem vefsíður, sjónaukar og fuglabækur.  Síðasta kvöldið verður farið í fuglaskoðunarferð á höfuðborgarsvæðinu.
Umsjón Jóhann Óli Hilmarsson
Dags: 13. apríl, 20. apríl og 27. apríl
Verð 12.000 kr

Þeir sem vilja skrá sig á námskeiðin eru vinsamlega beðnir um að senda tölvupóst til Leiðsöguskólans, netfangið er lsk@mk.is  eða hringja í síma 594 4025

Félagsmenn geta sótt um styrk úr Endurmenntunarsjóði vegna þessa námskeiða.

hj/skrifstofa


Skoða allar fréttir...


Annað
Skrifstofa
Pistlar
Listi yfir fagmenntaða leiðsögumenn
List of professional tourist guides in Iceland
Auglýsa eftir leiðsögumanni
ATHUGIÐ! Öryggisatriði vegna eldgoss og ösku

Störf í boði fyrir leiðsögumenn
Life of Whales (Hvalalíf)

Félag leiðsögumanna | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | Sími +354 588 8670 | info@touristguide.is