|
|
|
|
|
Eins og glöggir félagsmenn hafa nú þegar tekið eftir eru komnar fram breytingar á heimasíðu félagsins. Helsta breytingin er sú að tilkynningar frá stjórn, skrifstofu og úr nefndum eru nú vel aðgengilegar á framsíðu auk almennrar fréttaveitu sem ritnefndin hefur umsjón með. Því miður hefur af slysni dottið út efni sem átti að haldast inni. Stjórnin mun vinna í því að laga þetta ásamt ýmsum smákvillum. Við biðjumst velvirðingar á þessu. Félagsmenn með fagfélagsaðild geta áfram skráð sig inn á lokað svæði, þar er notandanafnið kennitala viðkomanda og lykilorðið félagsnúmerið (sem kemur fram á félagsskírteini). Á undanförnum mánuðum hefur þetta svæði verið lítið notað en kannski tekst okkur að færa nýtt líf í það á jákvæðum nótum. Þegar farið er á flipann „Mín síða“ má breyta persónulegu upplýsingum sem fram koma á listanum yfir faglærða leiðsögumenn, hægt er að setja inn mynd og skrá laus tímabil til vinnu. Endilega notið tækifærið til að koma ykkur á framfæri. Stjórn |